Forseti Brasilíu, Jair Bolsonaro, hefur sakað Hollywood-leikarann og umhverfissinnann Leonardo DiCaprio um að hafa borgað fyrir að láta kveikja í Amazon-regnskóginum.
DiCaprio, sem hefur heitið 5 milljónum bandaríkjadala til stuðnings Amazon-regnskóginum, neitar ásökunum forsetans brasilíska.
Forsetinn hefur ekki lagt fram neinar sannanir fyrir þessum ásökunum sínum en hann lét þessi orð flakka í live Facebook útsendingu.
„Leonardo DiCaprio, fjandinn sjálfur, þú er í sæmsæri gegn Amazon skóginum.“ Hann sagði hann síðan vera part af alþjóðlegum samtökum sem vinna gagngert gegn Brasilíu
„Þessi Leonard DiCaprio er svaka flottur gæi er það ekki? Borgar fólki pening til þess að brenna Amazon skóginn“
Samkvæmt frétt BBC hefur nokkur fjöldi fólks þegar verið handtekinn í tengslum við ásakanir um íkveikjur í skóginum en ekki er vitað hvers vegna forsetinn hendir fram þessum ásökunum á hendur DiCaprio.