Stefnumótaappið Smitten og kynlífstækjaverslunin Blush blása til skyndistefnumótakvölds á Sólon í miðborg Reykjavíkur hinn 9. september næstkomandi. Um er að ræða eðaltækifæri til að kynnast ástinni en Páll Óskar mun troða upp að stefnumótum loknum.
Kynnir er Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og mun hún halda uppi stuðinu, en plötusnúðurinn Sunna Ben mun þeyta skífum og halda öllum í rómantísku stuði. .Stefnumótin ganga þannig fyrir sig að hver þátttakandi fær tvær mínútur til að spyrja deitið sitt spurninga og svo er skipt um hlutverk.
Eftir samtalið færir annar aðilinn sig um set og allir fá nýja manneskju til að spjalla við. Því ætti öllum að gefast tækifæri á að kynnast og ákveða hvort þau vilji halda samræðunum áfram að kvöldinu loknu. Smitten mun útvega spurningar til hjálpa þeim sem þurfa aðstoð við að brjóta ísinn og koma samræðunum á flug.
Allir eldri en 20 ára eru velkomnir og eru vinir og vinkonur þátttakenda hvattir til að koma með og sýna stuðning við sitt fólk.
Að hraðstefnumótunum loknum mun stuðið halda áfram og lokar Páll Óskar kvöldinu. Húsið opnar klukkan 20 og hefjast stefnumótin klukkan 20:30.