Bíó Paradís kynnir – öll plaköt Svartra Sunnudaga frá upphafi – til sölu á postprent.is. Stórsniðug íslensk list í jólapakkann!
Frá árinu 2012 hefur Hugleikur Dagsson fengið íslenska listamenn til að gera plaköt fyrir sýningar Svarta Sunnudaga í Bíó Paradís. Plakötin eru nú orðin 200 – endurgerðir af költ og klassískum kvikmyndum eftir rjómann af samtímalistamönnum Íslands. Úrvalið er hægt að skoða á sölu síðu postprent.is og þar er hægt að versla gjafakort sem eru tilvalin í jólapakkann.