Úrslitaþátturinn í Allir Geta Dansað fór fram í kvöld og var þátturinn sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2.
Þau sem kepptu til úrslita í kvöld voru danspörin Manuela og Jón Eyþór, Veigar Páll og Ástrós, Haffi Haff og Sophie, Jón Viðar og Marta og Vala Eiríks og Sigurður.
Danspörin fengu öll frammúrskarandi einkunnir frá dómurum en í kvöld var það einungis símakosningin sem gilti. Eftir glæsilegt og æsispennandi kvöld voru það Vala og Sigurður sem stóðu uppi sem sigurvegarar keppninnar.