S02E01 | Amaroq skráð í þremur kauphöllum

Hluthafaspjallið

Að þessu sinni var Hluthafaspjallinu tvískipt. Í fyrri hluta þáttarins létu ritstjórarnir gamminn geisa en í seinni hluta þáttarins mætti Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland, og fór yfir tíðindi síðasta árs í Kauphöllinni og hvers væri að vænta á nýju ári.
Ritstjórarnir byrjuðu á því að fara yfir fjármálatíð Bjarna Benediktssonar, fráfarandi formanns Sjálfstæðisflokksins, en gríðarleg breyting varð á stöðu ríkissjóðs þegar hann tók við sem fjármálaráðherra árið 2013.
Um leið var farið yfir pólitíska óvissu með nýrri ríkisstjórn sem þegar er farin að hafa áhrif á sjávarútveginn? Litlu kvótahafarnir eru farnir að selja en ritstjórarnir veltu fyrir sér hvort stóru sjávarútvegsfyrirtækin í Kauphöllinni myndu njóta skráningarinnar. – Mun þetta styrkja stóru skráðu félögin? Um leið var farið yfir fjármögnunarþörf ríkissjóðs í ljósi fjármálaáætlunar. Á skuldabréfamarkaði á árinu munu togast á tveir kraftar. Annars vegar vaxtalækkanir Seðlabankans og hins vegar útgáfuþörf ríkissjóðs á skuldabréfum (sem þýðir aukin fjárþörf og hærri vextir).
En að venju var sjónum beint að kauphöllinni og sérstaklega því að mikið er að gerast í kringum „gullmolana þrjá“, Alvotech, Amaroq Minerals Ltd. og Oculis. Fjörugur þáttur að venju! Menn hefðu kannski átt að hlusta á Halldór Kristmannsson um Oculis í október!
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift

- Auglýsing -