Spjallið með Frosta Logasyni
Arnar Þór Jónsson, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir hér um þær stjórnmálahræringar sem eiga sér stað á vesturlöndum um þessar mundir og stöðu alþjóðamála. Hann telur stefnu Evrópuríkja gagnvart Bandaríkjunum sem hafa viljað enda stríðið í Úkraínu varasama og hefur áhyggjur af þáttöku íslenskra ráðamanna í því. Arnar segir varnarsamning Íslands við Bandaríkin vera í mikilli hættu þegar íslenskir stjórnmálamenn eru nokkurn vegin farnir að taka sér stöðu gegn Bandaríkjunum og hefur áhyggjur af því að stefna stjórnvalda sé að fara sækja hraðar um inngöngu í Evrópusambandið. Arnar spáir Flokki fólksins ekki miklu langlífi þar sem hann telur alveg ljóst að styrkjamálið svokallaða hafi ekki enn verið til lykta leitt.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á brotkast.is/askrift