Auglýsing

16 ára með skammbyssu og miðaði á lögreglumann

16 ára drengur var handtekinn í nótt fyrir að miða skammbyssu á lögreglumann og var færður á lögreglustöð þar sem foreldrar komu og sóttu hann.

Við nánari athugun reyndist byssan vera eftirlíking af skammbyssu eða svokölluð replica, en slíkar eftirlíkingar geta verið svo raunverulegar að ómögulegt er að greina á milli.

Hvað drengnum gekk til er ekki ljóst en að miða byssu að lögreglunni er mjög alvarlegt og ekki síður hættulegt því það hefur oft leitt til þess að lögreglan beiti banvænu afli erlendis.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing