Þrjú nýleg dómsmál frá Bretlandi hafa vakið mikla reiði og umræður á samfélagsmiðlum vegna ósamræmis í refsingu.
Í einu þeirra fékk fyrrverandi hermaður fangelsisdóm fyrir ósæmilegar færslur á samfélagsmiðlum á meðan tveir aðrir menn, dæmdir fyrir barnaníð og kynferðisafbrot, sluppu við fangelsi.
Ekki síðri athygli vekur sú staðreynd að sami dómari, Tracey Lloyd-Clarke, dæmdi í öllum málunum.
Dómur yfir barnaníðingum: Skilorðsbundnar refsingar
Jac Davies, 25, var gripinn með yfir 80 ósæmilegar myndir af börnum, þar á meðal myndbönd af ungbörnum en af þessum 80 myndum voru 36 þeirra metnar í grófasta flokki sem lögreglan hefur.
Hann slapp einnig við fangelsisvist í öðru máli eftir að hafa verið tekinn með gróft barnaníðsefni í fórum sínum.
Hann játaði sök og fékk 12 mánaða dóm, skilorðsbundinn í tvö ár, og var skipað að taka þátt í úrræðum fyrir kynferðisbrotamenn.
Annar barnaníðingur, Rees Newman, 33, var sakfelldur fyrir nauðgun á stúlku undir 14 ára aldri en slapp við fangelsi vegna því dómari sagði fangelsi í Bretlandi vera yfirfull.
Í staðinn var honum veitt skilorðsbundin refsing.
Hermaður fangelsaður fyrir hatursfull ummæli
Daffron Williams, fyrrverandi hermaður með áfallastreituröskun, fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir að hafa birt ummæli á Facebook.
Færslur hans voru taldar kynda undir kynþáttahatri og ofbeldi en þau komu í kjölfar morðanna í Southport þar sem þrjár ungar stúlkur voru myrtar á hræðilegan hátt.
Þrátt fyrir jákvæðar umsagnir og bakgrunn hans sem hermaður, ákvað dómari að fangelsisvist væri óhjákvæmileg vegna alvarleika málsins.
Þetta var sami dómari og hafði dæmt í þeim málum sem talin voru upp að ofan.
Blossandi reiði
Þetta ósamræmi hefur vakið reiði meðal almennings í Bretlandi sem gagnrýnir hvernig réttarkerfið refsar hermanninum fyrrverandi með þyngri d+om fyrir tjáningu sína á netinu en tveimur mönnum sem eru sekir um alvarleg kynferðisbrot gegn börnum.
Gagnrýnendur benda á að dómar yfir barnaníðingunum hafi verið mildaðir með vísan í skilyrði eins og fangelsisþrengsli á meðan ekki var tekið tillit til geðheilbrigðis og áfallasögu Williams.
Umræða um réttlæti í dómsmálum
Á samfélagsmiðlum hefur fólk kallað eftir endurskoðun á réttarkerfinu og betra samræmi í dómum.
Hvort frekar uppþot muni eiga sér stað mun koma í ljós en Southport morðinginn fékk lífstíðardóm nú fyrir stuttu.