Elon Musk, forstjóri Tesla og eigandi X, hefur verið formlega tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels 2025 fyrir stuðning sinn við tjáningar- og málfrelsi.
Það var Branko Grims, slóvenskur Evrópuþingmaður, sem átti upptökin að tilnefningunni og tilkynnti hana opinberlega í dag.
Í yfirlýsingu sem Grims birti á samfélagsmiðlum sagði hann að tillagan um að Musk hljóti friðarverðlaun Nóbels hafi verið lögð fram með stuðningi annarra þingmanna.
Hann þakkaði samstarfsmönnum sínum og öllum þeim sem komu að tilnefningunni.
Grims rökstyður tilnefninguna á þann veg að Musk hafi verið „staðfastur stuðningsmaður þeirra grundvallarréttinda sem tjáningar- og málfrelsi er og þar með stuðlað að auknum friði í heiminum.“
Norska Nóbelsnefndin velur handhafa verðlaunanna úr lista með hundruðum tilnefninga á hverju ári og tekur við tilnefningum frá stjórnmálamönnum sem og fólki úr fræðasamfélaginu.
Tilnefning Musks hefur vakið mikla athygli, sérstaklega í ljósi þess að hann hefur verið mjög umdeildur síðan hann hélt ræðu sína þegar Donald Trump var settur í embætti.
The proposal that Mr. Elon Musk, for his consistent support for the fundamental human right of freedom of speech and thus for peace, receives the Nobel Peace Prize 2025, was successfully submitted today. Sincere thanks to all the co-proposers and everyone who helped with this… pic.twitter.com/QdI4fnbzdU
— Branko Grims (@BrankoGrimsX1) January 29, 2025