Auglýsing

Enn ein hnífaárásin – Í þetta sinn í á bæjarhátíð í Mosfellsbæ

Bæjarhátíðin Í Túninu Heima var haldin um helgina í Mosfellsbæ og þar átti sér stað árás þar sem hnífur kom við sögu.

Betur fór en á horfðist og slapp sá sem fyrir árásinni varð án áverka og virðist sem fatnaður hafi bjargað viðkomandi en fatnaðurinn skarst.

Gerandi hefur ekki náðst og hefur lögregla ekki upplýsingar um hann að svo stöddu.

Lögregla var með talsverðan viðbúnað á hátíðinni og var mikið um stympingar á hátíðinni og mikið að gera en lögregla segir þó að engar alvarlegar líkamsárásir átt sér stað.

Nútíminn er þó ekki sammála þessu og heldur því fram að mjög alvarleg árás hafi átt sér stað og vill ítreka að allar árásir þar sem hnífi er beitt séu alvarlegar.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing