Auglýsing

Þjóðgarðsvörður hjálmlaus í sumarhellaferð

Þjóðgarðsvörðurinn Steinunn Hödd Harðardóttir sem hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum að undanförnu og í viðtölum við fjölmiðla, þar sem hún hefur gagnrýnt íshellaskoðunarferðir á sumrin og sagt þar að fyrirtækin hugsi meira um peninga en öryggi, náðist á ljósmynd þar sem hún sjálf er í íshellaskoðunarferð yfir sumartímann. Það sem meira er er að hún er þar hjálmlaus ásamt eiginmanni sínum sem virðist líka virða öryggisreglur að vettugi.

Ljósmyndin er fengin af Facebook-síðu Steinunnar en hún lokaði henni þegar DV fjallaði um harðorðan pistil hennar sem hún skrifaði inn á samfélagsmiðla og vakti mikla athygli. Ljósmyndin sem Nútíminn birtir er í hróplegu ósamræmi við fullyrðingar hennar um að „koma sem flestum inn í hellinn og græða fullt af peningum.“

Þá lét hún hafa eftir sér ummæli í viðtali við RÚV sem, að sama skapi, eru í engum takti við það sem hún virðist sjálf predika.

Skjáskot af RÚV.is

Fylgja ekki eigin reglum

Vatnajökulsþjóðgarður hefur gert mikið úr þeim öryggisreglum sem þarf að fylgja eftir í sumaríshellaskoðunarferðum – að minnsta kosti út á við en samkvæmt heimildum Nútímans er um algjöran hvítþvott að ræða enda hefur þjóðgarðurinn haft í „verkfæratösku“ sinni hin ýmsu tæki og tól til að sporna við þessum ferðum, fylgjast með öryggi og takmarka aðgengi en virðist ekki hafa nýtt þau. Ekki fyrr en ferðamaður lést við íshellaskoðunarferð. Þá er eins og þjóðgarðsverðir hafi vaknað af værum blundi.

Enginn hefur þó gengið jafn langt og Steinunn Hödd sem lét hafa eftir sér ýmislegt sem þó virðist ekki halda vatni – að minnsta kosti ekki ef litið er yfir hennar eigin ferðir á jökulinn.

„Íshellaferðir geta verið frábærar, en mér finnst standard margra fyrirtækja vera orðinn heldur neðarlega. Fyrir utan það að stór hluti þessara „íshellabíla“ eru aflóga druslur sem engin annar ferðaþjónustuaðili á Íslandi vill nota! Ég hef séð bíla á bílastæðinu við Jökulsárlón sem eru á aldri við mig!“ segir Steinunn Hödd á Facebook-síðu sinni – sem hún hefur lokað. Þá hélt hún áfram og vísaði því á bug að þjóðgarðurinn væri núna fyrst að bregðast við í kjölfar mikillar umræðu vegna banaslyssins.

Jón eða séra Jón?

„Svona færibandaferðir eru svo mikið að skemma fyrir þeim sem vilja bjóða upp á gæðavöru – það er bara ekki hægt þegar sum fyrirtæki geta boðið upp á lægra verð í krafti stærðar sinnar á markaði.“

Orðatiltækið að það skiptir máli hvort það sé Jón eða sr. Jón virðist eiga við í þessu tilfelli og í raun ótrúlegt að Vatnajökulsþjóðgarður og þeir sem eru ábyrgir fyrir honum hafi ekki þurft að axla meiri ábyrgð en raun ber vitni. Skuldinni er alfarið skellt á ferðaþjónustufyrirtækin – sem þó starfa eða að minnsta kosti störfuðu á jöklinum með leyfi frá þeim.

Ekki náðist í Steinunni Hödd við vinnslu fréttarinnar en búið er að hafa samband við hana og er beðið eftir svari.

Leiðsögumenn slógust uppi á jökli út af aðgengi að íshellinum sem hrundi: „Peningagræðgin kostaði mannslíf“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing