Metfjöldi greindist með kórónuveiruna í gær en samkvæmt bráðabirgðatölum almannavarna greindust 1.557 einstaklingar innanlands.
Aldrei hafa jafn margir greinst á einum degi hérlendis og má nefna til samanburðar að rúmlega 1.800 einstaklingar greindust í allri fyrstu bylgjunni á síðasta ári.
Í dag eru 7.585 í einangrun og 6.424 í sóttkví.