Ágúst Einþórsson einn stofnenda Brauð & Co hefur nú selt hlut sinn í bakaríinu til meðstofnenda sinna, þeirra Birgis Þórs Bieltvedt og Þóris Snæs Sigurjónssonar.
Þessu greinir Viðskiptamogginn frá í dag.
„Þetta er búið að ganga vel og ég held að þetta sé góður tími til þess að selja bréfin. Persónulega held ég að þetta sé rétt skref fyrir mig og á sama tíma tel ég að þetta sé rétt skref fyrir Brauð & Co,“ segir Ágúst í blaðinu.
Salan mun ekki hafa nein áhrif á rekstur Brauð & Co og mun Ágúst starfa þar áfram.