Rétt fyrir klukkan átta í morgun kom upp eldur í bíl sem staddur var á Kringlumýrarbraut, norðan við gatnamótin við Kringluna. Mikill reykur steig upp úr bílnum og var einn bíll frá slökkviliðinu kallaður á vettvang.
Að sögn varðstjóra gekk vel að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki.