Alexandra Helga Ívarsdóttir, eiginkona Gylfa Þórs Sigurðssonar, safnaði 600 þúsund krónum fyrir Ljósið, endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. Þetta kemur fram á vef Ljóssins.
Alexandra safnaði upphæðinni með því að taka til í fataskápnum og selja flíkurnar sínar í Trendport. Þá bauð hún einnig upp á áritaða treyju frá eiginmanni sínum.