Frá klukkan 22 í kvöld, laugardaginn 21. mars, skulu allir íbúar Húnaþings vestra sæta úrvinnslusóttkví. Ástæða þessara hertu sóttvarnaaðgerða eru grunsemdir um víðtækt smit í sveitafélaginu.
Um er að ræða tímabundna ráðstöfun á meðan unnið er að því að rekja smit og á meðan á þessu stendur getur aðeins einn aðili af hverju heimili yfirgefið heimilið til þess að sækja nauðsynjavörur.
Í tilkynningu frá aðgerðarstjórn almannavarna á Norðurlandi vestra segir að ákvörðunin gildi þar til aðgerðarstjórn tilkynni um annað,