Nú liggja 64 sjúklingar á Landspítala með Covid-19 og hafa þeir ekki verið fleiri síðan árið 2020.
Fjórir af þeim eru á gjörgæslu og þar af eru tveir í öndunarvél.
Tveir karlmenn á áttræðisaldri létust á gjörgæsludeild Landspítalans í gær með Covid-19.