Haldnir verða útitónleikar í Lystigarðinum í Hveragerði dagana 18. og 19. júní.
Þar munu stíga á stokk eftirtaldir flytjendur ásamt fyrirtaks hljómsveit:
Föstudagskvöld:
Bassadætur (Unnur Birna & Dagný Halla)
Valgeir Guðjónsson
Hreimur Örn Heimisson
Laugardagskvöld:
Lay Low
Stefanía Svavarsdóttir
Magnús Þór
Stefán Hilmarsson
Hægt er að kaupa helgarpassa á bæði kvöldin hér , en einnig fást miðar á hvort kvöldið fyrir sig.
Svæðið opnar kl. 19 bæði kvöld og tónleikarnir hefjast kl. 20.
„Hlökkum til að sjá ykkur í menningar- og matarkistu Sunnlendinga, Hveragerði, dagana 18. -19. júní,“ segir í tilkynningu.