Upplýsingafundur Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis hefst á slaginu klukkan 11:00 í dag.
Á fundinum munu þau Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir fara yfir stöðu mála varðandi framgang Covid-19-faraldursins hér á landi. Með þeim á fundinum verður Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á mbl.is