Þessa dagana eru hér staddir um 300 sérfræðingar sem taka þátt í Northern Challenge, sem er alþjóðleg sprengjuleitaræfing á vegum NATO.
Markmið æfingunnar er að æfa viðbrögð við hryðjuverkum við hinar ýmsu aðstæður hvort sem það er á flugvelli, í höfnum, við bryggju eða í skipi. Notast er við starfssvæði Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli við æfingarnar en einnig eru æfingar á hafnarsvæðum víða á Suðurnesjum.
Keith Mabbott, undirforingi í konunglega breska sjóhernum segir Ísland henta vel til sprengjuleitaræfinga. Hér sé bæði veðurfarið og landslagið krefjandi.
„Ef þú getur framkvæmt sprengjuleit á Íslandi getur þú gert það hvar sem er,“ segir Mabbott í umfjöllun um æfingarnar í morgunblaðinu í dag. Þetta kom fram á vef Mbl í dag.
Æfingunni lýkur í næstu viku en hún hófst á sunnudaginn síðastliðinn.