Einn sjúklingur lést á Landspítalanum síðasta sólarhringinn vegna Covid-19. Þetta kemur fram á vef Landspítalans.
Alls hafa nú 25 einstaklingar látið lífið hér á landi af völdum veirunnar. Landspítalinn vottar aðstandendum samúð í tilkynningu spítalans.