„Endum þetta ævintýri á einu hressu Covid-smiti í viðbót! Þessi ólétta og bólusetta kona var greind með Covid í dag. Eftir að prófið mitt týndist á flugvellinum í gær brunaði ég í annað í morgun. Ég er samt drulluhress og einkennalaus. Förum varlega og verum góð hvert við annað. Ást og friður,“ segir Árný Fjóla Ásmundsdóttir, úr hljómsveitinni Gagnamagninu, í færslu á Instagram.
Árný Fjóla, sem er gift Daða Frey úr Gagnamagninu, er ólétt að þeirra öðru barni.
View this post on Instagram