Atli Fannar Bjarkason, fyrrum ritstjóri og eigandi Nútímans, hefur verið ráðinn í fullt starf hjá RÚV sem verkefnastjóri samfélagsmiðla.
Hann seldi Nútímann síðasta haust og hóf störf hjá auglýsingastofunni Hugsmiðjunni. Hann segir í Facebook færslu að það hafi ekki staðið til að hætta þar svo snemma en RÚV hafi auglýst starf í sumar sem togaði svo svakalega í hann að hann gat ekki sleppt því að sækja um.
Atli Fannar mun ekki halda áfram með innslög sín í Vikunni með Gísla Marteini á föstudagskvöldum.