Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneyti segir að atvinnuleitendum verði gert kleift að hefja nám og fá fullar atvinnuleysisbætur í eina önn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
„Frítekjumark vegna skattskyldra tekna einstaklinga sem koma af vinnumarkaði hefur verið hækkað úr 4,1 m.kr. í 6,8 m.kr. til að tryggja [þeim sem koma inn í nám af vinnumarkaði] rýmri rétt til námslána. Aðgerðirnar eru hluti af átakinu Nám er tækifæri en markmiðið er að koma til móts við atvinnuleitendur með markvissum aðgerðum og hvetja þá til þess að sækja sér formlega menntun til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Aðgerðirnar eru hluti af tillögum í mennta- og vinnumarkaðsmálum sem áætlað er að verja samtals 6,2 milljörðum króna í“, segir í tilkynningunni.
„Fjármögnun er tryggð fyrir allt að 3.000 atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur og vilja skrá sig í nám í dagskóla á vorönn 2021, haustönn 2021 eða vorönn 2022. Kjósi atvinnuleitendur að hefja nám mun það ekki hafa áhrif á bótarétt og nýtingu hans.“
„Við vitum að næstu misseri verða krefjandi á ýmsum vígstöðvum en við ætlum að blása til sóknar og gera atvinnuleitendum betur kleift að stunda nám án þess að missa rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Við ætlum þannig að koma til móts við atvinnuleitendur með markvissum aðgerðum, skapa þekkingu og virkja kraft til framtíðar. Það er skynsamlegt fyrir okkur sem samfélag að verja fjármunum í að virkja atvinnuleitendur til náms. Slíkt skilar sér í aukinni færni, þekkingu og verðmætum fyrir samfélagið allt til lengri tíma,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra.