Tónlistarfólkið Auður og gusgusar gáfu í dag út lagið Frosið sólarlag.
Auður átti mest spilaða lag ársins 2019, Enginn eins og þú, sem vann Íslensku tónlistarverðlaunin það sama ár.
Tónlistarkonan Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir eða gusgusar, sem er einungis 16 ára gömul, gaf út sína fyrstu plötu fyrr á árinu og ber hún heitið Listen To This Twice.
Nú hafa þessir tveir listamenn sameinað krafta sína í laginu Frosið sólarlag.