Hljómsveitin Baggalútur sendi frá sér í dag plötuna Kveðju skilað.
Platan inniheldur lög eftir Braga Valdimar Skúlason við kvæði eftir vestur–íslenska skáldið Káinn (1860–1936).
Platan kom út í dag á streymisveitum og á geisladiski, en hún verður einnig fáanleg á vínilútgáfu hinn 10. desember. Mun hún auk nýju laganna innihalda valin lög af hljómplötunni Sólskinið í Dakota, sem kom út á geisladiski árið 2009.