Baltasar Kormákur mun leikstýra stórleikaranum Mark Wahlberg á nýjan leik í kvikmynd sem byggð er á bók Svíans Mikael Lindnord, Arthur: The Dog Who Crossed the Jungle to Find a Home. Greint er frá þessu á vef Variety.
Baltasar hefur áður unnið með Wahlberg í myndunum Contraband og 2 Guns.