Banaslys varð við Framhaldsskólann á Laugum í dag þegar 19 ára karlmaður var fyrir bifreið.
Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var maðurinn meðvitundarlaus og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Nokkrir nemendur úr skólanum urðu vitni að slysinu og hefur áfallahjálparteymi Rauða krossins verið virkjað til að hlúa að þeim.
Rannsókn á tildrögum slyssins er á algjöru frumstigi getur lögreglan því ekki veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.