Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, eða Herra Hnetusmjör, og Sara Linneth Lovísudóttir Castañeda eiga von á öðru barni. Greint er frá þessu á Vísi
Fyrir á parið son sem fæddist í febrúar 2020, Björgvin Úlf Árnason Castañeda.
Herra Hnetusmjör er einn vinsælasti tónlistarmaður landsins ásamt því að reka skemmtistaðinn 203 og nýverið opnaði hann einnig nikótínpúða verslunina Vörina.