Fjögur ungmenni á aldrinum 16 og 17 ára voru flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri eftir bílveltu í Eyjafirði. Slysið varð um klukkan hálf eitt í nótt. Þessu er greint frá á rúv.is
Í samtali við fréttastofu rúv segir Kolbrún Jónsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, að ökumaður bílsins hafi misst stjórn á honum á malarkafla á Hólavegi.
Ekkert ungmennana virtist alvarlega slasað en ekki var hægt að veit frekari upplýsingar um líðan þeirra að svo stöddu.