Bílvelta varð á Álftanesvegi um fimmleytið í dag og lenti bíllinn á hvolfi utan vegar.
Einn maður var í bílnum, með meðvitund, og var hann fluttur á slysadeild. Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu eru meiðsli hans talin minniháttar.
Þá rákust einnig tveir bílar saman á Reykjanesbraut við Vífilsstaðaveg um tvöleytið í dag og urðu minniháttar slys á fólki. Þetta kom fram á vef Mbl.