Fyrirhuguð ráðstefna Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Björgun 2020, hefur verið blásin af. Ráðstefnan átti að fara fram dagana 16-18. október í Hörpu.
Að sögn stjórnar Landsbjargar var ákvörðunin um að aflýsa ekki auðveld þar sem ráðstefnan skipi stóran sess í að skipuleggja faglegt björgunarstarf landsins.
Hertar sóttvarnarreglur yfirvalda vegna COVID-19 eru ástæðan fyrir því að hætt hefur verið við ráðstefnuna og telur stjórnin ákvörðunina vera bæði rétta og ábyrga.