Í þessari viku verða samtals 24 þúsund einstaklingar bólusettir hér á landi, með öllum fjórum tegundum bóluefna. Þetta kemur fram á vef embættis landlæknis
Samtals fá um 12 þúsund bóluefni Pfizer, skiptist jafnt í fyrri og seinni bólusetningu. Einnig fá um 7 þúsund bólusetningu með bóluefni Moderna, bólusett verður með 4 þúsund skömmtum af Janssen bóluefninu og um 1500 einstaklingar fá bóluefni AstraZeneca.