Ásgeir Sigurðsson er ungur leikstjóri og handritshöfundur sem stendur að baki nýrrar þáttaraðar, Bömmer, sem hefur göngu sína á Rúv núll í sumar.
Í þáttunum fylgjumst við með vinum í framhaldsskóla með öllu því drama sem fylgir líkt og átökum á milli vina og samskiptum kynjanna.
Serían hefur göngu sína þann 22. maí næstkomandi.
Hér fyrir neðan má sjá fyrstu stikluna úr þáttunum.