Auglýsing

Bráðabirgðaniðurstöður losunarbókhalds gróðurhúsalofttegunda á Íslandi

Umhverfisstofnun hefur tekið saman bráðabirgðaniðurstöður losunar gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands fyrir árið 2019. Þetta er nýmæli, því fram til þessa hafa losunartölur verið gefnar út tveimur árum eftir að losunin á sér stað, þegar þeim er skilað inn til Rammasamnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar.

https://ust.is/umhverfisstofnun/frettir/stok-frett/2020/09/23/Visbendingar-um-samdratt-i-losun-fra-vegasamgongum/

Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðunum, sem gætu átt eftir að taka breytingum, dróst losun á beinni ábyrgð Íslands saman um 0,3% á milli áranna 2018 og 2019. Með Parísarsáttmálanum höfum við skuldbundið okkur til að ná 29% samdrætti í losun á beinni ábyrgð Íslands árið 2030, miðað við losun ársins 2005. Bráðabirgðaniðurstöðurnar benda til þess að við höfum nú náð 6,7% af þeim 29%. Stefnt er að a.m.k. 35% samdrætti árið 2030 samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar. Bráðabirgðatölurnar ná ekki yfir losun sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) né losun og kolefnisbindingu sem tengist landnotkun, breyttri landnotkun og skógrækt (LULUCF).

Helstu niðurstöður:

Losun vegna urðunar dróst saman um 10% milli áranna 2018 og 2019. Losun frá vegasamgöngum dróst saman um 2% á þessum sama tíma og er það í fyrsta skipti frá 2014 sem má sjá samdrátt í þessum flokki. Losun frá jarðvarmavirkjunum jókst hins vegar um 5% á tímabilinuLosun frá iðnaðarferlum og efnanotkun jókst umtalsvert en sú losun er að stærstum hluta annars eðlis þ.e., vegna kælimiðla sem hafa 7 ára líftíma og því er losun þeirra í beinu samhengi við innflutning þeirra 7 árum áður.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing