Brekkusöngur er fyrir löngu orðinn fastur liður í hátíðarhöldum Íslendinga um verslunarmannahelgina. „Það gleður okkur að geta staðfest að fyrirhuguð dagskrá kvöldsins fer að fullu leyti fram þrátt fyrir ástandið í þjóðfélaginu,“ segir í tilkynningu. Ekki nóg með það heldur verður bætt í dagskrána, útsendingin fer fram frá sviðinu í Dalnum eins og fyrirhugað var, kveikt verður í brennu og blys tendruð. Það verður sem sagt farið alla leið til þess að skapa hina einu sönnu Þjóðhátíðarstemmningu út í Eyjum fyrir Íslendinga hvar sem þeir eru í heiminum. Dagskrá kvöldsins: Magnús Kjartan Eyjólfsson, forsöngvari og gítarleikari Stuðlabandsins mun stýra brekkusöngnum þetta árið, í beinu streymi og allir geta tekið þátt hvar sem þeir eru í heiminum. Magnús hefur um árabil verið einstaklega eftirsóttur trúbador samhliða því að spila með hljómsveit sinni vítt og breitt um landið við hin ýmsu tilefni og meðal annars komið fram á Ásamt Albatross koma fram: Sérstakur gestur: Ljóst er að hér er um að ræða einstaka tónlistarveislu og Íslendingar geta sameinast, hvar sem þeir eru í heiminum og gert sér glaðan dag. Aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér miða strax á sérstöku forsöluverði. Öll miðasala fer fram á Tix.is og er hægt að velja á milli þriggja leiða; netstreymis í gegnum spilara frá Vimeo eða myndklykla Símans eða Vodafone. Kaupandi velur rétta miðatýpu og fær kóða sem virkar í eitt af þremur kerfunum. Auðvelt er að virkja aðganginn strax og þá er allt klappað og klárt. Einnig er hægt að kaupa strax með fjarstýringunni í myndlyklum Vodafone og þegar nær dregur í myndlyklum Símans. SÉRSTAKT FORSÖLUVERÐ: Miðaverð munu hækka þegar nær dregur og verður það tilkynnt með fyrirvara. |
Hér má finna nánari upplýsingar um viðburðinn