Brekkusöngur á Þjóðhátíð er fyrir löngu orðinn fastur liður í hátíðarhöldum Íslendinga um verslunarmannahelgina. Nú verður brekkusöngurinn í fyrsta skipti aðgengilegur um allan heim, í beinu streymi. Öll miðasala fer fram á Tix.is og er hægt að velja á milli þriggja leiða; netstreymis í gegnum spilara frá Vimeo eða myndklykla Símans og Vodafone. Kaupandi velur rétta miðatýpu og fær kóða sem virkar í eitt af þremur kerfunum. Auðvelt er að virkja aðganginn strax og þá er allt klappað og klárt. Einnig er hægt að kaupa strax með fjarstýringunni í myndlyklum Vodafone og þegar nær dregur í myndlyklum Símans. DAGSKRÁIN 1. ÁGÚST: Nánari dagskrá verður kynnt innan skamms. Aðeins þarf að kaupa einn miða fyrir hvert heimili og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér miða strax á sérstöku forsöluverði. SÉRSTAKT FORSÖLUVERÐ: Miðaverð munu hækka þegar nær dregur og verður það tilkynnt með fyrirvara. |
Tryggðu þér miða hér