Fjölskylduhátíðin Kótelettan verður haldin í 11. sinn á Selfossi í sumar, dagana 9. til 11. júlí.
„Að vanda verður öllu til tjaldað enda finnum við fyrir mikilli eftirvæntingu í samfélaginu,” segir Einar Björnsson, framkvæmdarstjóri hátíðarinnar, í tilkynningu.
Um er að ræða eina stærstu grill- og tónlistarveislu á Íslandi þar þar sem enginn ætti að láta sig vanta. Miðasala hefst í dag á kotelettan.is en þar má einnig nálgast nánari upplýsingar og dagskrá hátíðarinnar í ár.
Tónlistarfólkið Páll Óskar, Bríet, Love Guru, GDRN, Herra Hnetusmjör munu troða upp á tónlistarhátíðinni í ár, ásamt fleirum.