Auglýsing

Britney vill sættast við mömmu

Það hefur ekki verið lognmolla í kring um eina frægustu söngkonu samtímans, Britney Spears, en hún skildi nýverið við eiginmann sinn til 14 mánaða. Þá hefur líf hennar verið litað af fjölskylduerjum en hún hefur sagt það opinberlega að hún hati föður sinn.

En söngkonan virðist leggja áherslu á það þessa dagana að slíðra sverðin ef marka má bæði Instagram og fréttaveituna TMZ. Á Instagram mátti sjá ljósmynd af Britney og mömmu sinni Lynne en samkvæmt heimildum TMZ hafa þær mæðgur verið í reglulegu sambandi undanfarnar vikur. Ljósmyndin sem birtist á Instagram er hinsvegar fyrsta myndin af þeim mæðgum saman sem sést hefur í nokkur ár.

Britney hélt upp á 42 ára afmælið sitt um helgina og mætti mamma hennar í partíið ásamt bróður Britney sem heitir Bryan. Samkvæmt TMZ þá reynir Britney þessa dagana að sættast við systur sína, Jamie Lynn, en fjölmiðlar vestanhafs hafa mikið fjallað um þau rifrildi á þessu ári.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing