Tilkynnt var um bílveltu á Bústaðavegi í gærkvöldi.
Ökumaðurinn er grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Einnig kom í ljós að maðurinn er smitaður af Covid-19 og átti að vera í einangrun.
Hann var fluttur í sóttvarnarhús eftir aðhlynningu. Skemmdir urðu á vegriði, ljósastaur og staur fyrir myndavélakassa í slysinu.