Dagatal Slökkviliðsins er komið út og eru allar fyrirsætur dagatalsins starfandi hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins, við slökkvilið og sjúkraflutninga.
Dagatalið er gefið út til að fjármagna ferðalög slökkviliðsmanna- og kvenna á Heimsleika lögreglu- og slökkviliðsmanna (World Police and Fire Games, WPFG) sem haldnir eru á tveggja ára fresti og verður næst haldið 2022.
Hluti ágóðans við söluna rennur til valinna góðgerðarmála. Sérstök áhersla hefur verið á málefni tengd börnum og eldri borgurum.
Hægt er að tryggja sér eintak á heimasíðunni www.heimsleikar.com