Dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, boðar til blaðamannfundar í dag klukkan 14. Fundurinn verður haldinn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Þetta kemur fram á vef vísis
Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn munu sitja fyrir svörum á fundinum ásamt Áslaugu.
Á fundinum verða ræddar þær breytingar á komu ferðamanna til landsins sem taka munu gildi þann 15. júní næstkomandi, eða á mánudaginn.
Bein útsending verður frá fundinum á Vísir.is