Leit stendur enn yfir að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð af fiskiskipi á leið þess til hafnar í Vopnafirði í gær. Drónakafbátur hefur nú verið tekinn í notkun við leit að manninum.
Með honum er hægt að skoða sjávarbotn leitarsvæðisins en Jón Sigurðsson, formaður björgunarsveitarinnar Vopna, segir í samtali við mbl.is að koma verði í ljós hvernig kafbáturinn reynist
Veðrið er gott fyrir austan og góð leitarskilyrði eru á staðnum. Fjörur eru gengnar ásamt því að bátar eru notaðir við leitina. Eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar leitar úr lofti innan leitarsvæðisins en hún lenti á Vopnafirði um klukkan 11 í dag. Björgunarsveitir allt vestur frá Húsavík og suður frá Djúpavogi taka þátt í leitinni.