Meikar ekki sens eru ferskir og orkumiklir sketsaþættir sem feta nýjar slóðir. Þrátt fyrir ungan aldur hafa höfundar og leikarar þegar skapað sér nafn í skemmtanabransanum og mæta nú til leiks með sína fyrstu sjónvarpsþáttaröð. Serían kemur í heild sinni í kvöld, miðvikudag, í Sjónvarp Símans.
Með aðalhlutverk fara þau Arnór Björnsson, Óli Gunnar Gunnarsson, Ásgrímur Gunnarsson, Ásthildur Úa Sigurðardóttir og Kolbrún María Másdóttir.