Tveir fólksbílar rákust saman við gatnamót Úthlíðar og Lönguhlíðar rétt fyrir klukkan fjögur í dag.
Flytja þurfti einn á slysadeild eftir áreksturinn. Þetta kemur fram á vef mbl
Sjúklingurinn var með meðvitund en spenna þurfti upp eina hurð á bílnum til að ná honum út, að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Meiðsl hans voru ekki talin mjög alvarleg.