Á morgun stendur ungmennaráð UN Women á Íslandi fyrir stórtónleikum í kjallara Hard Rock í Lækjargötu. Einungis kvenkyns listamenn koma fram á tónleikunum en fram koma Bríet, GDRN, Salka Sól, Elísabet Ormslev, Una Torfadóttir, Una Schram, Matthildur, GRÓA og hljómsveitin Ólafur Kram.
Allur ágóði tónleikanna rennur til málefna UN Women.