Ekið var á sjö ára gamalt barn á Hörgárbraut til móts við Stórholt á Akureyri um þrjúleytið í dag. Ekki er vitað um ástand barnsins þegar þetta er skrifað en það var flutt til aðhlynningar á spítala.
Rétt fyrir klukkan fimm var verið að opna fyrir umferð á nýjan leik en götunni var lokað á meðan vettvangur var rannsakaður.
Það á eftir að taka skýrslu af ökumanninum en hann er ekki grunaður um um ölvunar- eða fíkniefnaakstur. Þetta kemur fram á vef mbl