Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar Landspítalans, funduðu nú síðdegis með fulltrúum lyfjafyrirtækisins Pfizer, vegna mögulegs tilraunaverkefnis þar sem reynt yrði að ná hjarðónæmi gegn Covid-19 á Íslandi.
Að sögn Kára Stefánssonar verður ekkert úr verkefninu.
„Það var mat Pfizer að hér væru of fá tilfelli til þess að framkvæma rannsókn af þessu tagi. Við höfðum engin haldbær rök gegn því,“ segir Kári Stefánsson eftir fundinn í samtali við mbl.is