Eldur kom upp í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Grafarvogi á níunda tímanum í morgun. Fimm manna fjölskylda var í íbúðinni og voru þau öll flutt á slysadeild til aðhlynningar.
Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins en slökkviliðsmenn frá öllum stöðvum voru sendir á vettvang. Eldsupptök eru ókunn en eldurinn kom upp í svefnherbergi í íbúðinni.
Slökkvilið lauk störfum um tíuleytið og tók lögregla þá við vettvangi.