Eldur kviknaði í flutningabifreið á Grindavíkurvegi og var slökkvilið kallað út á tíunda tímanum í morgun.
Ekki er vitað hvað varð til þess að kviknaði í bifreiðinni. Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá því að Grindavíkurvegur sé lokaður sem stendur vegna atviksins.